4. september 2025

Tæpar 887 milljónir í húsnæðisstuðning í ágúst

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi þann 1. september síðastliðinn um 887 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í ágúst. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um allt land og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Stuðningurinn skiptist í tvo meginflokka; almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.  

Almennar húsnæðisbætur 

Húsnæðisbætur, sem er stærsti hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. HMS greiddi um 861 milljón króna til um 16.566 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í ágústmánuði. 

Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð 

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru um 25 milljónir króna til um 960 umsækjenda í Kópavogi og 85 umsækjenda í Skagafirði vegna leigu í ágúst. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS