15. október 2025
15. október 2025
Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar og byggingarmála á Norðurlandi vestra
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Miðvikudaginn 22. október verður haldinn opinn fundur um þróun og framtíðahorfur íbúðarmarkaðar á Norðurlandi vestra. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS, Ártorgi 1 á Sauðárkróki, kl. 15 og er opinn öllum. Að fundinum standa HMS, Tryggð byggð og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Á fundinum verður fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins.
Dagskrá:
- Staðan í Skagafirði
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar - Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur
Jón Örn Gunnarsson, sérfræðingur húsnæðisáætlana hjá HMS - Byggingarleyfi á Íslandi – allt á einum stað
Dagný Geirdal, verkefnastjóri Mannvirkjaskrár hjá HMS
Fundarstjóri verður Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
Húsið opnar kl. 14:45 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.
Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS