12. mars 2026

Suðurland eykur hlutdeild sína í fjölda íbúða á landinu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Fjöldi íbúða í byggingu hefur haldist stöðugur síðustu mánuði
  • Hlutfallslega eru flestar íbúðir í byggingu á Suðurlandi
  • Niðurstöður úr marstalningu íbúða í byggingu verða kynntar 24. mars

Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu eru nú skráðar 5.906 íbúðir í byggingu víðs vegar um landið, sem er sambærilegur fjöldi og síðustu mánuði. Á sama tíma eru 938 byggingaráform skráð, það er í verkefnum þar sem byggingarleyfi hefur verið gefið út en framkvæmdir eru enn óhafnar. Byggingaráformum fækkar á milli mánaða en þau voru 1.038 talsins í febrúar.

Samkvæmt skráningum voru langflestar íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu, alls 3.667 af 5.906 íbúðum. Það samsvarar ríflega þremur af hverjum fimm íbúðum í byggingu á landinu. Það er í samræmi við hlutdeild höfuðborgarsvæðisins í íbúðastofninum, en þar eru um 62,6% allra íbúða landsins.

Á sumum landsvæðum er íbúðauppbygging þó hlutfallslega meiri en núverandi vægi íbúða í íbúðastofninum. Það á einkum við um Suðurland, þar sem um 17,3% íbúða í byggingu eru staðsettar, þótt landshlutinn skipi aðeins um 9% af íbúðum landsins. Svipuð mynd sést á Suðurnesjum, þar sem hlutdeild íbúða í byggingu er 8,6% en hlutfall íbúða þar í íbúðastofninum er 7,4%.

Á Norðurlandi eystra er staðan hins vegar önnur. Þar er hlutdeild íbúða í byggingu lægri en hlutdeild landshlutans í íbúðum. Tölurnar benda því til þess að með hliðsjón af íbúðastofni sé uppbygging um þessar mundir hlutfallslega mest á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess, en minni annars staðar á landinu.

Marstalning íbúða í byggingu

HMS stendur fyrir talningu íbúða í byggingu á landinu öllu í mars og september ár hvert. Í talningunni er farið um öll byggingarsvæði landsins og lagt mat á framvindu hverrar íbúðar. Þetta er gert í þeim tilgangi að fá betri yfirsýn yfir stöðu og framgang íbúðauppbyggingar í landinu og hvenær áætlað er að íbúðir komi á markað. Í talningunni er sömuleiðis safnað upplýsingum um íbúðir sem eru fullbúnar en hafa ekki verið teknar í notkun. Marstalning HMS er komin vel á veg og stendur til að kynna niðurstöður hennar 24. mars.

Helsti munur á þeirri talningu og mælaborði íbúða í byggingu er að gögnin í mælaborðinu byggja á gögnum úr fasteignaskrá. Nákvæmni þeirra veltur á því hversu vel og tímanlega sveitarfélög uppfæra skráningar. Niðurstöður talningarinnar varpa því betra ljósi á raunstöðuna eins og hún er hverju sinni. Niðurstöður talningarinnar eru jafnframt nýttar til þess að uppfæra skráningar í fasteignaskrá. Því sýnir mælaborðið ávallt bestu upplýsingar sem tiltækar eru hverju sinni.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS