18. febrúar 2026

Stýrihópur Burðar mótar stefnu samstarfsvettvangsins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Stýrihópur Burðar, samstarfsvettvangs fyrir mannvirkjarannsóknir og prófanir kom saman á vinnustofu þann 3. febrúar síðastliðinn. Markmiðið var að móta stefnu vettvangsins og búa til aðgerðaráætlun.

Ráðgjafafyrirtækið RATA hélt utan um vinnuna en í stýrihópnum sitja fulltrúar frá HMS og ráðuneytum auk háskólasamfélagsins og fagfélaga. 

Vinnustofan gekk vel. Umræður voru líflegar og skoðanaskipti hrein og uppbyggileg. Ljóst er að mikil þörf er fyrir miðlægan vettvang sem stuðlar að rannsóknum varðandi mannvirkjagerð og auknu aðgengi að rannsóknarniðurstöðum.   

Meginmarkmið Burðar er að stuðla að betri byggingum öruggari mannvirkjum og sjálfbærari þróun með því að sameina þekkingu innviði og fjármögnun á einum öflugum vettvangi.

Framtíðarsýnin er að vettvangurinn hafi festi sig í sessi með markvissri uppbyggingu og sameiginlegri sýn þar sem slagkraftur og sýnileiki rannsókna og prófana verður aukinn. Burði er ætlað að vera drifkraftur í því að tryggja meira fjármagn til rannsókna svo hægt sé að efla þróun og nýsköpun í mannvirkjagerð á Íslandi.

  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS