18. maí 2026
18. maí 2026
Stutt í birtingu umhverfismats vegna Sundabrautar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS ber ekki ábyrgð á töfum á umhverfismati Sundabrautar
- Undirbúningur umhverfismatsskýrslu er á forræði framkvæmdaraðila
- Umhverfismat við Sundabraut felur í sér úrlausn fjölda álitaefna
HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS.
Endanleg gögn málsins bárust ekki frá framkvæmdaraðilanum fyrr en um miðjan mars síðastliðinn og hefur starfsfólk HMS unnið að málinu af krafti síðan. Sökum umfangs þeirra gagna sem lögð hafa verið fram mun álit HMS, að öllum líkindum, birtast um þremur vikum eftir að lögbundinn frestur rennur út. HMS harmar þetta en stofnunin leggur mikla áherslu á skilvirka afgreiðslu þeirra erinda sem henni berast.
Þá vill HMS jafnframt árétta, með vísan til þess sem fram kom í kvöldfréttum Sýnar þann 12. maí síðastliðinn, að meðferð málsins hjá HMS er ekki ástæða þess að umhverfismati framkvæmdarinnar var ekki lokið vorið 2025. Umhverfismatsskýrsla framkvæmdaraðila barst HMS sumarið 2025.
Undirbúningur umhverfismatsskýrslu, þar á meðal rannsóknir og önnur gagnaöflun, er ávallt á forræði framkvæmdaraðilanna sjálfra. Hlutverk HMS er að fara yfir gögnin sem framkvæmdaraðili leggur fram, annast lögbundið samráð við almenning, opinberar stofnanir og aðra þá sem kunna að láta sig málið varða, auk þess sem stofnunin gefur álit sitt á matsáætlun og umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila.
Umfangsmikið umhverfismat og mikill fjöldi umsagna
Vel skiljanlegt er að umhverfismat framkvæmdaraðila og annar undirbúningur vegna framkvæmdarinnar hafi tekið tíma. Sundabraut er umfangsmikið verkefni og umhverfismat framkvæmdarinnar felur í sér úrlausn fjölda álitaefna. Sem dæmi má nefna að mikill fjöldi umsagna barst á kynningartíma umhverfismatsskýrslunnar og komu þar fram ýmis álitamál sem framkvæmdaraðili þurfti að bregðast við og leysa.
HMS bárust, sem áður segir, endanleg gögn og svör framkvæmdaraðila við fyrrnefndum umsögnum þann 16. mars síðastliðinn. Samkvæmt lögbundnum tímafrestum hefði stofnunin átt leggja fram endanlegt álit sitt á umhverfismati framkvæmdarinnar þann 4. maí en það náðist ekki vegna verulegs umfangs gagna. Markmiðið er að ljúka lögformlegri meðferð stofnunarinnar eins fljótt og kostur er, án þess að draga úr gæðum eða réttaröryggi og að álitsgerð HMS um mat á umhverfisáhrifum Sundabrautar liggi fyrir síðar í þessum mánuði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




