8. október 2026

Stofnframlög hafa stuðlað að uppbyggingu um 4.300 leiguíbúða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Nærri 3.300 íbúðir eru komnar í útleigu innan almenna íbúðakerfisins um allt land og um 1.000 til viðbótar eru í uppbyggingu
  • Uppbygging innan kerfisins nær ekki að mæta þörf eftir leiguhúsnæði
  • Ríki og sveitarfélög hafa úthlutað stofnframlögum til 331 íbúðar það sem af er þessu ári

Frá því að stofnframlög voru fyrst kynnt til sögunar fyrir um 10 árum síðan hafa stofnframlög ríkis og sveitarfélaga stuðlað að uppbyggingu rúmlega 4.000 leiguíbúða á viðráðanlegu verði um allt land, en um 3.300 þessara íbúða hafa þegar verið teknar í notkun. Þrátt fyrir að hægt hafi úr fjölgun umsækjenda eru biðlistar hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum enn langir og hjá flestum félaganna nær uppbyggingin ekki að mæta eftirspurn. Það sem af er ári hefur stofnframlögum verið úthlutað tvisvar vegna samtals 331 íbúðar. Nú er opið fyrir umsóknir í þriðju úthlutun ársins og er umsóknarfrestur til og með 23. október.

Dreifing almennra íbúða í notkun eftir staðsetningu.

Nýj­ar íbúð­ir tekn­ar í notk­un í al­menna íbúða­kerf­inu

Bjarg íbúðafélag hses. tók nýverið í notkun 36 almennar leiguíbúðir við Safamýri í Reykjavík sem byggðar voru með stofnframlögum ríkisins. Félagsbústaðir eiga hluta íbúðanna, sem einnig verða leigðar út innan almenna íbúðakerfisins. Framkvæmdir hófust haustið 2024 og lauk í júlí 2026, en fyrstu íbúðirnar voru tilbúnar til afhendingar í júní sama ár. Bjarg er einnig með 69 íbúðir í byggingu við Haukahlið í Reykjavík, ganga þær framkvæmdir vel og er áætlað að fyrstu íbúðirnar innan þess verkefnis verði tilbúnar til notkunar undir lok næsta árs.

Fleiri íbúðaverkefni eru jafnframt í undirbúningi á landsbyggðinni. Brák íbúðafélag hses. undirbýr nú, í samstarfi við Húnabyggð, byggingu fimm íbúða þjónustukjarna á Blönduósi. Íbúðirnar verða nýttar sem sértækt búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun. Einnig er Brák með í undirbúningi byggingu á 8 íbúðum á Dalvík. Brák er stærsta óhagnaðardrifna leigufélagið innan almenna íbúðakerfisins sem starfar utan höfuðborgarsvæðisins með um 300 íbúðir um allt land  og eiga nú 32 sveitarfélög aðild að félaginu.

Nem­enda­garð­ar og náms­mann­a­í­búð­ir byggð­ar um allt land

Uppbyggingu námsmannaíbúða á háskólasvæðinu í Reykjavík verður haldið áfram, en nú eru 148 stúdentaíbúðir í byggingu við Nauthólsveg í Reykjavík. Framkvæmdir hófust á síðari hluta árs 2025 og er áætlað að þeim ljúki í ágúst á næsta ári. Verkefnið er framhald tveggja fyrri áfanga við Nauthólsveg, þar sem samtals 252 námsmannaíbúðir hafa verið byggðar með aðstoð stofnframlaga.

Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar tóku nýverið í notkun 12 nýjar íbúðir í Borgarnesi, sem byggðar voru með stofnframlögum. Verkefnið er samstarfsverkefni Menntaskóla Borgarfjarðar og Brákarhlíðar fasteignafélags ehf. Í húsnæðinu verða bæði námsmenn og eldra fólk og er verkefninu ætlað að mæta aukinni þörf fyrir húsnæði eldra fólks, samhliða skorti á nemendaíbúðum.

Á Norðurlandi er einnig undirbúningur hafinn að byggingu nemendagarða við Norðurslóð á Akureyri á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri. Byggð verða þrjú hús með samtals 126 íbúðum af fjölbreyttum stærðum, þar á meðal einstaklingsherbergi, stúdíóíbúðir og tveggja herbergja íbúðir. Áætlun gerir ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar haustið 2028.

Um stofn­fram­lög

Stofnframlög eru stuðningur í formi eigin fjár sem veitt eru til uppbyggingar á leiguíbúðum fyrir tekju- og eignaminni heimili til að auka húsnæðisöryggi leigjenda og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Stofnframlögin sem eru veitt bæði til byggingar og kaupa á íbúðum eru veitt annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.

Stofnframlag ríkisins er 18% af stofnkostnaði íbúðanna og framlag sveitarfélags er 12%. Ríki er heimilt að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis ætlað námsmönnum eða fötluðu fólki. Einnig er heimilt að veita sérstakt byggðaframlag vegna byggingar almennra íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS