20. febrúar 2024

Stjórnvöld og atvinnulíf leggja til leið til að mæla kolefnisspor mannvirkja

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Tillaga um innleiðingu lífsferilsgreiningar sem mælir kolefnisspor mannvirkja yfir allt lífsskeið þeirra er nú til umsagnar á Samráðsgátt stjórnvalda
  • Verði tillagan samþykkt mun lífsferilsgreining þurfa að fylgja meðalstórum og umfangsmiklum byggingarleyfisskyldum mannvirkjum frá og með 1. september 2025
  • Lífsferilsgreiningin er fyrsta afurð stýrihóps um heildarendurskoðun  á byggingarreglugerð en miðað er við að ná fram 43 prósenta samdrátt í kolefnislosun bygginga árið 2030

Innviðaráðuneytið hefur kynnt drög að reglugerð um innleiðingu svokallaðrar lífsferilsgreiningar, sem mælir umhverfisáhrif mannvirkja yfir allt lífsskeið þeirra, inn í byggingarreglugerð. Drögin  eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Lífsferilsgreining (e. Life cycle analysis eða LCA) er aðferð sem notuð er til að meta staðbundin og hnattræn umhverfisáhrif vöru eða þjónustu yfir alla virðiskeðjuna. Þannig er m.a. tekið tillit til öflunar hráefna, framleiðslu, notkunar og förgunar. Hægt er að lesa meira um greiningarnar á heimasíðu Grænni byggðar.

Reglugerðin felur í sér að frá og með 1. september 2025 verði gerð krafa um gerð lífsferilsgreininga fyrir öll ný byggingarleyfisskyld mannvirki í umfangsflokkum 2 og 3 en til þessa hefur aðeins verið mælst til þess að slík lífsferilsgreining sé gerð. Lögð er áhersla á útreikninga kolefnisspors en önnur umhverfisáhrif, svo sem vatnsnotkun og auðlindanotkun, geta bæst við þegar fram liður. Gengið er út frá því að fram að gildistöku verði 18 mánaða aðlögunartími þar sem fræðslu verður beint með markvissum hætti að viðeigandi hagaðilum.

Sömuleiðis leggur reglugerðin upp með að eigendur eða fulltrúar þeirra skili lífsferilsgreiningum í rafræna skilagátt á vegum HMS, bæði á hönnunarstigi og lokastigi. HMS myndi svo senda til baka staðfestingu á móttöku greininganna. Eftirlitið yrði háttað með því að HMS velji lífsferilsgreiningar með slembivali til sérstakrar yfirferðar.

Reglugerðin gerir ekki kröfu um að þeir aðilar sem geri lífsferilsgreiningar þurfi að hafa lokið tilteknu námi eða hafi sérstök réttindi. Hins vegar leggur hún til að notaður verði hugbúnaður fyrir slíkar greiningar til að tryggja gæði gagna og rekjanleika, auk þess sem hún einfaldi sérfræðingum og hönnuðum vinnuna. Dæmi um slík forrit eru One Click LCA, LCAbyg, og OpenLCA.

Lið­ur í að draga úr los­un í mann­virkja­gerð um 43 pró­sent

Innleiðing lífsferilsgreiningar fyrir mannvirki  er fyrsta afurð stýrihóps sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skipaði um heildarendurskoðun á byggingarreglugerð vorið 2023. Vinna stýrihópsins, sem er skipaður fulltrúum frá innviðaráðuneytinu, HMS, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum iðnaðarins,  snýr meðal annars að aukinni sjálfbærni og minni losun í byggingargeiranum, en einnig að aukinni neytendavernd, nýsköpun, gæði og sjálfbærni.

Í grunninn eiga breytingarnar rætur að rekja til aðgerðar 5.1.3 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 sem gefinn var út árið 2022 á vegum Byggjum grænni framtíð, samstarfsvettvangi stjórnvalda og atvinnulífs um vistvænni mannvirkjagerð. Þannig stefna stjórnvöld og atvinnulíf að því að draga úr kolefnislosun í mannvirkjagerð um 43 prósent fyrir árið 2030 og hafa skilgreint 74 aðgerðir til að ná því markmiði. Samræmd aðferðarfræði um að innleiða lífsferilsgreiningu er ein af grundvallaraðgerðum til að árangur náist. „Ef þú getur ekki mælt það, geturðu ekki bætt það“, segir í Samráðsgáttinni.

Áhugasöm eru hvött til að kynna sér málið nánar á Samráðsgátt og senda inn umsögn fyrir lok febrúar 2024.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS