5. október 2021

Stafrænar húsnæðisáætlanir

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga hafa reynst mikilvægt tól við stefnumótun og ákvarðanatöku stjórnvalda. Nú er fyrirhugað að húsnæðisáætlanir verði með breyttu sniði frá og með 2022. Þeim verður skilað stafrænt og á stöðluðu formi með það að markmiði að auðvelda sveitarfélögum gerð þeirra ásamt því að gera stjórnvöldum kleift að gera samanburð á milli sveitarfélaga. Samanburðarhæfar húsnæðisáætlanir bæta yfirsýn yfir stöðu og horfur á húsnæðismarkaði. Með aukinni stafrænni stjórnsýslu á sviði húsnæðis- og byggingarmála má gera ráð fyrir að íbúðaspá muni á næstu árum eflast og þar munu húsnæðisáætlanir verða mikilvægasta tæki stjórnvalda til að taka ákvarðanir sem snúa að húsnæðismarkaði.HMS hyggst hefja samstarf með sveitarfélögunum í átt að breyttu verklagi þar sem stefnt er að því að árið 2023 verði allar húsnæðisáætlanir orðnar stafrænar en sveitarfélögin verða hvött til þess að skila inn húsnæðisáætlun fyrir árið 2022 stafrænt. Þann 8. október nk. mun Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS, kynna stafrænar húsnæðisáætlanir á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna. Í kjölfar þess mun HMS boða fundi með sveitarfélögunum í gegnum landshlutasamtök þar sem farið verður betur yfir fyrirkomulagið, stefnt er að því að þessir fundir eigi sér stað í næstu viku (11. – 15. október) og að opnað verði í kjölfarið fyrir gerð stafrænna húsnæðisáætlana í samstarfi með HMS.