15. maí 2025
16. desember 2022
Spörum orku, forðumst myglu: Opnum glugga oft en stutt í einu
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Við hjá HMS tökum undir með Veitum að rétt sé að fara sparlega með heita vatnið í kuldatíð.
Við bendum þó jafnframt á að nauðsynlegt sé að lofta híbýli reglulega, bæði til að tryggja góð loftgæði innanhúss en einnig til að koma í veg fyrir rakasöfnun sem getur valdið rakaþéttingu í byggingarhlutum og við rúður.
Rakaþétting getur leitt getur til rakaskemmda. Gott er að hafa í huga að markmið með loftun er að skipta um inniloft án þess að veggir og húsgögn nái að kólna. Það má gera með því að opna glugga oft en í stuttan tíma og gjarnan á fleiri stöðum í einu til að tryggja loftflæði. Eiga þessar ráðleggingar helst við um húsnæði sem ekki er með stýrðri loftræsingu.
Á heimasíðu HMS má finna ýmsa fræðslu um mannvirkjamál, sjá nánar hér.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS