21. apríl 2023

Sótt um stofnframlög til byggingar eða kaupa á 298 almennum leiguíbúðum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þann 21. mars sl. opnaði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fyrir umsóknir um stofnframlög í fyrstu úthlutun ársins 2023, umsóknar frestur var fjórar vikur og til úthlutunar á árinu eru tæpir 4 milljarðar.  

  • Alls bárust 25 umsóknir frá 12 umsækjendum til byggingar eða kaupa á samtals 298 hagkvæmum leiguíbúðum.  
  • Sótt er um stofnframlög í 17 sveitarfélögum í öllum landshlutum og eru 70% íbúðanna á Höfuðborgarsvæðinu og 30% á landsbyggðinni.  
  • Heildarfjárfesting verkefnanna er um 15,4 milljarðar og er umsótt fjárhæð vegna stofnframlaga ríkisins um 3,2 milljarðar.  
  • Stofnframlag sveitarfélaganna 17 sem sótt er um stofnframlög í er 1,8 milljarðar.  
  • Hlutdeild nýbyggingarverkefna er 60% og kaupa 40% og er stór hluti af þeim keyptu íbúðum úr nýbyggingum.  

Stofnframlög hafa verið veitt til uppbyggingar á yfir 3.000 íbúðum  

Frá árinu 2016 þegar lög um stofnframlög tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað framlögum fyrir samtals 30 milljarða til uppbyggingar á rúmlega 3.000 almennum leiguíbúðum víðsvegar um landið. Á þessu ári hafa 180 almennar leiguíbúðir verið teknar í notkun sem erum um fjórðungur allra nýrra íbúða á árinu og samtals hafa rúmlega 2.000 almennar íbúðir verið teknar í notkun frá upphafi. 

Hvað eru stofnframlög? 

Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkis í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í. Stofnframlög eru veitt til bæði kaupa og byggingar á íbúðarhúsnæði.  

Markmiðið með stofnframlögunum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignalágra með aðgengi að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.   

Stofnframlag ríkisins er 18% og sveitarfélags er 12%. Ríki er heimilt er að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis ætlað námsmönnum eða öryrkjum. Einnig er heimilt að veita sérstakt byggðaframlag vegna byggingar almennra íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging í búða hefur verið í lágmarki. 

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS