13. maí 2025
9. mars 2021
Sótt um 4 milljarða í stofnframlög til uppbyggingar á hagkvæmu leiguhúsnæði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
29 umsóknir bárust frá 13 ólíkum aðilum sem hafa áform um að byggja eða kaupa alls 472 Almennar íbúðir og leigja út í langtímaleigu á viðráðanlegu verði.
- 29 umsóknir bárust frá 13 ólíkum aðilum sem hafa áform um að byggja eða kaupa alls 472 Almennar íbúðir og leigja út í langtímaleigu á viðráðanlegu verði.
- Frá árinu 2016 hefur stofnframlögum verið úthlutað til byggingar og kaupa 2.625 íbúðum af hálfu ríkisins að fjárhæð 15,9 milljarðar króna.
- Forstjóri HMS: „Erfið staða víða um land hjá þeim sem eftir sitja á leigumarkaði og hafa ekki notið góðs af vaxtalækkunum síðustu misseri“
- Fyrirhuguð heildarfjárfesting í Almennum íbúðum gæti numið um 9 milljörðum vegna úthlutunar HMS á stofnframlögum á þessu ári. Íbúðirnar rísa um allt land.
Mikil eftirspurn er eftir fjárstuðningi ríkisins til reksturs hagkvæmra leiguíbúða, svokallaðra Almennra íbúða. Frestur rann út þann 22. febrúar og alls bárust umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á 472 Almennum íbúðum fyrir alls 4.006.570.097 kr. til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem veitir stofnframlögin. Til úthlutunar að þessu sinni eru allt að 3,4 milljarðar og munu sérfræðingar HMS meta hvaða umsóknir fá brautargengi að þessu sinni.
Að mati HMS sýnir þessi mikla eftirspurn eftir stofnframlögum að enn sé mikil þörf fyrir leiguíbúðir á viðráðanlegu verði um allt land fyrir fólk sem uppfyllir skilyrði um tekju- og eignamörk Almennra íbúða.
Mun fjölga leiguíbúðum um allt land – mikið af nýbyggingum á landsbyggðinniAlls bárust umsóknir um 29 verkefni frá 13 umsækjendum. Sótt var um stofnframlög til byggingar á 235 íbúðum, kaupa á 220 íbúðum og til breytinga á húsnæði í eigu sveitarfélags fyrir 17 íbúðir. Alls er sótt um stofnframlög í 15 sveitarfélögum um land allt en flestar íbúðirnar eiga að vera á höfuðborgarsvæðinu.
Leiguíbúðir fyrir námsmenn, tekjulága á vinnumarkaði, fatlaða, aldraða og öryrkjaÍbúðirnar 472 sem sótt var um stofnframlög vegna skiptast niður í flokka. Umsækjendur um stofnframlögin áætla að byggja eða festa kaup á 164 íbúðum ætlaðar leigjendum undir tekju- og eignamörkum, 26 íbúðum fyrir námsmenn, 121 félagslegri íbúð á vegum sveitarfélaga, 113 íbúðum fyrir öryrkja og fatlaða, 38 íbúðum til byggingar sértækra búsetuúrræða og 10 íbúðum fyrir aldraða.
Mikil þörf á ódýrara leiguhúsnæði
Nýútgefin greining HMS á íbúðaþörf leiðir í ljós að enn er þörf á uppbyggingu á nýju húsnæði hér á landi, ekki síst á leigumarkaði. Almenna íbúðakerfið er hugsað til þess að mæta tekjulægstu hópunum sem eru í hvað viðkvæmastri stöðu á húsnæðismarkaði. Í greiningunni kemur fram að í þeim hópum er enn þá mikil þörf um allt land, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu.
Þrátt fyrir vísbendingar um batamerki á leigumarkaði á árinu 2020, þ.e. aukið framboð og lækkun leigu, þá hefur leiguverð aðeins lækkað um 2% á milli ára í síðustu mælingum. Á sama tíma hafa miklar vaxtalækkanir dregið úr greiðslubyrði húsnæðiseigenda á nýjum lánum um 25 - 30%, þrátt fyrir hratt hækkandi húsnæðisverð. Mælingar HMS sýna að leiguverð er enn mjög hátt í hlutfalli af ráðstöfunartekjum heimilanna og á meðan fjárhagur húsnæðiseigenda hefur batnað á milli ára hefur fjárhagur leigjenda versnað.
Samkvæmt skilgreiningu Eurostat telst húsnæðiskostnaður mjög íþyngjandi nái hann 40% af ráðstöfunartekjum. Í leigukönnunum HMS hefur hlutfall leigufjárhæðar af ráðstöfunartekjum mælst um 40% að meðaltali síðustu ár. Að auki jókst hlutfall leigjenda umtalsvert sem greiðir enn meira í leigu, þ.e. meira en 50%, úr 22,6% árið 2019 í 30,1% árið 2020. Hæst er hlutfallið á leigumarkaði í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins en þar segjast 45% leigjenda greiða meira en helming ráðstöfunartekna í leigu.
Hermann Jónasson, forstjóri HMS:
„Það er jákvætt að sjá hversu margir eru tilbúnir að byggja upp húsnæði og leigja út í langtímaleigu á hagkvæmu verði með stuðningi ríkis- og sveitarfélaga. Við vitum að það eru tekjulægri hóparnir sem eiga erfiðast uppdráttar á húsnæðismarkaði og greiningar okkar sýna að það er erfið staða víða um land hjá þeim sem eftir sitja á leigumarkaði og hafa ekki notið góðs af vaxtalækkunum síðustu misseri. Það er því ljóst að enn er mikil þörf á því að auka framboð á leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði fyrir tekju- og eignalága víða um land.
Hvað eru Almennar íbúðir?
Almennar íbúðir sem eru leiguíbúðir sem njóta sérstaks stuðnings ríkis og sveitarfélaga. Aðilar sem vilja reka slíkt húsnæði sækja um stofnframlög til HMS og til sveitarfélaga. Þeir sjá síðan sjálfir um rekstur og útleigu íbúðanna til hópa sem uppfylla skilyrði laganna. Óheimilt er að reka slíkt húsnæði í hagnaðarskyni og ef selja á íbúðirnar þarf fyrst að endurgreiða stofnframlögin sem veitt voru. Uppgreidd stofnframlög renna í sérstakan sjóð sem gert er ráð fyrir að verði á endanum nægilega stór til að úr verði sjálfbært kerfi á húsnæðismarkaði. Sjóðurinn geti til framtíðar veitt fé til uppbyggingar á fleiri almennum íbúðum. HMS auglýsir árlega eftir umsóknum um stofnframlög. Stofnuninni er heimilt að auglýsa oftar, ef því fjármagni sem er til úthlutunar hvert ár er ekki öllu úthlutað eftir eina auglýsingu.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ásta Magnúsdóttir, forstöðumaður á lánasviði HMS, í s: 440-6400.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS