18. október 2021

Skýrsla um öryggisgler

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í maí síðastliðnum lét Húsnæðis- og mannvirkjastofnun með aðstoð BSI á Íslandi framkvæma skoðun á því hvernig framleiðendur og aðrir rekstraraðilar öryggisglers fullnægðu kröfum laga nr. 114/2014 og reglugerðar (ESB) nr. 305/2011 sem birt er sem fylgiskjal með lögunum. Öryggisgler er byggingarvara sem fellur undir framagreind lög og reglugerð og skulu þau CE-merkt í samræmi við kröfur 8. og 9. gr. reglugerðarinnar. Þá skal framleiðandi gera yfirlýsingu um nothæfi þegar varan er sett á markað, sbr. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Yfirlýsing um nothæfi skal uppfylla kröfur 4., 6. og 7. gr. reglugerðarinnar. Samkvæmt 11. gr. reglugerðarinnar skal framleiðandi sjá til þess að vörunni fylgi leiðbeiningar og upplýsingar um öryggismál og samkvæmt 12. gr. skulu innflytjendur sjá til þess sama.  

Skoðuð voru öryggisgler fyrir veggi, sturtur, svalahandrið, svalalokanir og þar sem öryggisgler er notað eitt og sér. Alls voru skoðuð sjö mismunandi öryggisgler hjá fimm rekstraraðilum. Ekkert öryggisgler var án athugasemda. Aðallega var þó um að ræða að gögn væru ekki á íslensku eða hefðu ekki borist. Alvarlegasta athugasemdin var sú að eitt öryggisglerið var ekki CE-merkt. Í sama tilfelli vantaði einnig upplýsingar um framleiðanda eða aðrar formkröfur óuppfylltar. Í einu tilfelli var um ranga CE-merkingu að ræða.

Öllum fimm rekstraraðilum var veittur sanngjarn frestur til úrbóta sem var nýttur.

Hér er hægt að nálgast markaðskönnunina hér á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

 

 

 

 

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS