31. janúar 2025
31. janúar 2025
Skýrar árstíðarsveiflur í útleigu námsmannaíbúða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Gildum leigusamningum í leiguskrá fjölgaði um 1.702 á fjórða ársfjórðungi 2024, þar af um 298 í desembermánuði
- Flestir nýir leigusamningar um námsmannaíbúðir taka gildi við upphaf skólaárs
- Leigusamningar um námsmannaíbúðir draga niður meðalleiguverð í ágúst
Á fjórða ársfjórðungi 2024 fjölgaði gildum leigusamningum í leiguskrá HMS um 1.702, þegar 3.977 nýir leigusamningar tóku gildi en 2.275 leigusamningar féllu úr gildi. Þar af fjölgaði samningunum um 298 í desember 2024 þegar 1.264 samningar tóku gildi á sama tíma og 966 samningar féllu úr gildi.
Flestir nýir leigusamningar um námsmannaíbúðir við upphaf skólaárs
Útleiga námsmannaíbúða er á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Á árinu 2024 tóku alls 5.046 nýir leigusamningar á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga gildi á sama tíma og 3.652 slíkir leigusamningar féllu úr gildi. Flestir leigusamningar um námsmannaíbúðir tóku gildi í upphafi skólaárs, en rúmlega 40 prósent allra nýrra leigusamninga á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga á árinu tóku gildi í ágústmánuði.
Að sama skapi féllu langflestir leigusamningar á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga úr gildi yfir sumarmánuðina, þ.e. frá lokum skólaárs í maí fram að upphafi nýs skólaárs í ágúst.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fjölda leigusamninga á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga sem tóku gildi og féllu úr gildi eftir mánuðum á árinu 2024. Hægt er að nálgast upplýsingarnar úr mælaborði leiguskrár sem aðgengilegt er hér.
Leigusamningar um námsmannaíbúðir draga niður meðalleigu
Sé litið til þróunar meðalleiguverðs í nýskráðum samningum sem teljast ekki til markaðsleigu má sjá skýra lækkun í ágústmánuði, þegar flestir leigusamningar um námsmannaíbúðir tóku gildi. Meðalleiguverð í ágústmánuði var tæpar 118 þúsund krónur samanborið við 156 þúsund krónur að meðaltali í öðrum mánuðum ársins.
Sé hins vegar litið til þróunar meðalfermetraverðs í slíkum samningum má greina lítilsháttar hækkun í ágústmánuði. Þar sem fermetraverð er alla jafna hærra í samningum sem varða smærri íbúðir er þetta til marks um að námsmannaíbúðir séu alla jafna smærri en aðrar íbúðir sem leigðar eru út utan markaðsleigu.
Í leiguverðsjá HMS má nálgast upplýsingar um þróun leiguverðs eftir ýmsum breytum, meðal annars eftir því hvort um markaðsleigu sé að ræða eða ekki. Á meðfylgjandi mynd má sjá meðaltal leiguverðs og fermetraverðs í samningum sem teljast ekki til markaðsleigu á árinu 2024.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS