12. október 2026

Skráning er hafin á Skipulagsdaginn 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Skipulagsdagurinn 2026 fer fram þann 5. nóvember, kl 9-16 í Háteig á Grandhótel og í beinu streymi. Fundarstjóri verður Bergsteinn Sigurðsson.
  • Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál.
  • Dagskrá ársins verður fjórskipt með pallborðsumræðum í hverjum hluta.

Dagskrá dagsins skiptist niður í fjóra hluta:

  • Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana
  • Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar
  • Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum
  • Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli

Áhersla á umræður og tíma fyrir spjall í hléum

Í lok hvers hluta verða pallborðsumræður og tekið við spurningum úr sal. Fjölbreyttur hópur frummælenda og sérfræðinga mun koma að pallborðsumræðum. Þá mun gefast góður tími í kaffihléum fyrir gesti til að spjalla saman.

Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur.  

 

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS