8. maí 2025
13. desember 2023
Drög að reglugerð um merki fasteigna í samráðsgátt
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill vekja athygli á máli nr. S-258/2023 í Samráðsgátt stjórnvalda. Þar kynnir innviðaráðuneytið til samráðs drög að reglugerð um merki fasteigna sem taka á gildi á nýju ári í samræmi við breytingar á lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Þann 1. janúar 2024 breytist heiti laganna í „lög um skráningu, merki og mat fasteigna“ og lög um landamerki nr. 41/1919 falla m.a. úr gildi.
Vakin er sérstök athygli á stuttum umsagnafresti. Frestur til athugasemda er til 26. desember nk. Hér er hlekkur á málið í samráðsgátt [Samráðsgátt | Mál: S-258/2023 (island.is)
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS