6. febrúar 2025

Rúmur milljarður í húsnæðisstuðning í janúar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þann 31. janúar 2025 greiddi HMS um 1.038 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í janúar. Þessar greiðslur styðja þúsundir heimila víðs vegar um landið og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Greiðslurnar taka til þriggja mismunandi flokka húsnæðisstuðnings; almennra húsnæðisbóta, sértæks stuðnings fyrir Grindvíkinga, og veitingu sérstaks stuðnings fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.

Almennar húsnæðisbætur

Húsnæðisbætur, sem eru stór hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. HMS greiddi rúmar 918 milljónir króna til um 17.100 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í janúarmánuði.

Sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ

HMS ber ábyrgð á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga frá því að úrræðið tók gildi í desember árið 2023. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja íbúðarhúsnæði utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Um rúmar 97 milljónir voru greiddar vegna leigu í janúar til um 465 heimila.

Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls um 23 milljónir króna til um 925 umsækjenda í Kópavogi og 80 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS