6. mars 2025
5. mars 2025
Rúmur milljarður í húsnæðisstuðning í febrúar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þann 28. febrúar síðastliðinn greiddi HMS um 1.036 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í febrúar. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um allt land og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Greiðslurnar taka til þriggja mismunandi flokka húsnæðisstuðnings; almennra húsnæðisbóta, sértæks stuðnings fyrir Grindvíkinga, og veitingu sérstaks stuðnings fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.
Almennar húsnæðisbætur
Húsnæðisbætur, sem er stærsti hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. HMS greiddi tæpar 918 milljónir króna til um 17.260 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í febrúarmánuði.
Sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ
HMS ber ábyrgð á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga frá því að úrræðið tók gildi í desember árið 2023. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja íbúðarhúsnæði utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Um rúmar 94 milljónir voru greiddar vegna leigu í febrúar til um 451 heimila.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls um 24 milljónir króna til um 958 umsækjenda í Kópavogi og 85 umsækjenda í Skagafirði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS