3. janúar 2025
6. janúar 2025
Rúmur milljarður í húsnæðisstuðning í desember
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þann 30. desember 2024 greiddi Húsnæðis og mannvirkjastofnun um 1.037 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í desember. Þessar greiðslur styðja þúsundir heimila víðs vegar um landið og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Greiðslurnar taka til þriggja mismunandi flokka húsnæðisstuðnings: almennra húsnæðisbóta, sértæks stuðnings fyrir Grindvíkinga, og veitingu sérstaks stuðnings fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.
Almennar húsnæðisbætur
Húsnæðisbætur, sem eru stór hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. HMS greiddi tæpar 890 milljónir króna til um 16.700 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í desembermánuði.
Sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ
HMS ber ábyrgð á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga frá því að úrræðið tók gildi í desember á síðasta ári. Stuðningnum er ætlað að styðja við Grindvíkinga vegna náttúruhamfara sem hafa leitt til þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. HMS greiðir stuðninginn til þeirra íbúa sem hafa neyðst til að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkur og er greiddur mánaðarlega. Um tæpar 113 milljónir voru greiddar vegna leigu í desember til um 535 heimila.
Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir Kópavog og Skagafjörð
HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru alls um 24 milljónir króna til um 970 umsækjenda í Kópavogi og 80 umsækjenda í Skagafirði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS