4. júní 2025

Rúmar 950 milljónir í húsnæðisstuðning í maí

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

30. maí síðastliðinn greiddi HMS um 956 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í maí. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um allt land og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Greiðslurnar taka til tveggja flokka húsnæðisstuðnings; almennra húsnæðisbóta og veitingu sérstaks stuðnings fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar.

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur

Húsnæðisbætur, sem er stærsti hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. HMS greiddi rúmlega 930 milljónir króna til um 17.500 umsækjanda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu í maímánuði.

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur fyr­ir Kópa­vog og Skaga­fjörð

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluti af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Greiddar voru um 26 milljónir króna til um 1000 umsækjenda í Kópavogi og 90 umsækjenda í Skagafirði.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS