30. maí 2025

Rb-blöð mánaðarins - Ísetning einangrunarglers og burðarklossar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS hefur endurvakið útgáfu á svonefndum Rb-blöðum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaða hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tilefni útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS eldri blöð í lok hvers mánaðar, það er blöð sem tengjast málefnum líðandi stundar.

Rb-blað mánaðarins er í þetta skiptið tvö blöð og fjalla þau um ísetningu einangrunarglers og rétta og ranga staðsetningu burðarklossa við glerjun.

Ísetn­ing ein­angr­un­ar­glers og burð­ar­kloss­ar

Gæði glugga ráðast af mörgum samverkandi þáttum. Allir eiga þeir þátt í varanleika gluggans og verður hver og einn að heppnast til að viðunandi árangur náist.

Helstu atriðin sem skipta máli eru gæði karmefna, lögun karma, glerjunarefni, þéttilistar og svo framvegis. Síðast en ekki síst er samsetning glugganna, ísetning og glerjun mikið nákvæmnisverk en hluti þess er rétt staðsetning burðarklossa glerja.

Þegar stórir gluggar eru glerjaðir getur röng uppsetning rúðu leitt til brots í gleri eða aflögunar á fúgum og þéttingu. Þetta á sérstaklega við um karma með grönnum karmstykkjum en þá er þeim mun mikilvægara að burðarklossar karms og burðarklossar glers standist á. Annars er hætta á skemmdum í gleri og formbeygingu karms undan þunga glersins.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS