22. maí 2025
29. maí 2024
Rb-blöð mánaðarins: Svalir og frágangur setlauga með tilliti til barna
HMS mun á næstu mánuðum hefja aftur útgáfu af svonefndum Rb-blöðum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaða hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina og mun HMS birta blöð í lok hvers mánaðar sem tengjast málefnum líðandi stundar. Rb-blað mánaðarins er í þetta skiptið tvö blöð.
- Fyrra blaðið var gefið út í júní 1995 og fjallar um svalir/sólverönd. Blaðið má nálgast með því að smella á þennan hlekk.
- Seinna blaðið var gefið út í maí 1993 og fjallar um frágang og öryggi við laugar og setlaugar með tilliti til barna. Blaðið má nálgast með því að smella á þennan hlekk.
- Önnur útgefin Rb-blöð má nálgast með því að smella á þennan hlekk.
Með hækkandi sól er gjarnan farið í framkvæmdir á borð við pallasmíði, gluggaísetningar, uppsetningu heitra potta og frágang svala. Rb-blöð um svalir og frágang og öryggi lauga og setlauga með tilliti til barna varð því fyrir valinu.
Svalir – sólverönd
Fyrra blaðið fjallar um svalir við íbúðir. Mikilvægt er að huga vel að skipulagi svala, nýtingu þeirra og öryggisatriðum. Sömuleiðis er mikilvægt að svalirnar skapi gott skjól og að á þeim sé gert ráð fyrir vatnsniðurfalli, öryggisyfirfalli, lýsingu og innstungu fyrir rafmagn.
Frágangur og öryggi við laugar og setlaugar með tilliti til barna
Seinna blaðið fjallar um hvernig megi minnka slysahættu í og við setlaugar og laugar við heimahús. Margt ber að hafa í huga við framkvæmdir og eitt af því mikilvægasta snýr að öryggi notenda. Sérstaklega varðandi frágang og öryggi við laugar og setlaugar.
Við kaup og uppsetningu á heitum potti þarf til dæmis að gæta að læstu loki, að hæð girðingar og slysahættu varðandi niðurfallsristar.