25. ágúst 2026

Rb-blað mánaðarins: Tré og trégluggar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Tré og timbur eru meðal mikilvægustu byggingarefna í mannvirkjagerð
  • Rétt efnisval og þekking á eiginleikum viðar stuðlar að aukinni endingu mannvirkja
  • Góður frágangur tréglugga hjálpar til við að fyrirbyggja rakaskemmdir og viðhaldsþörf

Í rúma hálfa öld hafa Rb-tækniblöðin miðlað þekkingu og leiðbeiningum um mannvirkjagerð og byggingartækni. Samhliða útgáfu nýrra Rb-tækniblaða er því tilefni til að rifja upp eldri blöð sem enn hafa mikið notagildi og eiga fullt erindi við viðfangsefni samtímans.

Nú þegar vætutíð haustsins fer að ganga í garð er gott að huga að timburgluggum húsa. Að þessu sinni er athygli vakin á Rb-blaðinu Tré – trjátegundir og efniseiginleikar viðarins frá árinu 2016.

Tré – trjátegundir og efniseiginleikar viðarins

Þar er fjallað um uppbyggingu viðar og helstu trjátegundir sem notaðar eru í byggingariðnaði. Farið er yfir eiginleika algengra timburtegunda, meðal annars styrk þeirra og endingu, auk áhrifa raka á viðinn. Blaðið veitir góðan grunnskilning á timbri sem byggingarefni og þeim þáttum sem hafa áhrif á endingu þess og eiginleika í mannvirkjum.

Jafnframt er vakin athygli á reynslublaðinu Skemmdir á trégluggum frá árinu 1997.

Skemmdir á trégluggum

Þar er fjallað um algengar orsakir rakaskemmda og fúa í trégluggum og bent á mikilvægi vandaðs frágangs til að tryggja endingu þeirra. Sérstök áhersla er lögð á frárennsli vatns, halla botnfalsa og glerlista, loftun og réttar þéttingar. Reynslan sýnir að skemmdir hefjast gjarnan þar sem vatn safnast fyrir eða kemst inn í viðinn. Í blaðinu má því finna gagnlegar ábendingar um hvernig fyrirbyggja megi slíkar skemmdir með góðri hönnun, vandaðri framkvæmd og reglulegu viðhaldi.

Góð ráð eld­ast vel

Þótt bæði blöðin hafi verið gefin út fyrir nokkrum árum eiga þau enn fullt erindi við fagfólk í mannvirkjagerð og húseigendur. Saman varpa þau ljósi á hvernig efniseiginleikar timburs, rétt efnisval og vandaður frágangur hafa áhrif á endingu byggingarhluta. Með því að huga að þessum þáttum má draga úr viðhaldsþörf og fyrirbyggja kostnaðarsamar rakaskemmdir síðar á líftíma mannvirkja.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS