28. janúar 2025

Rb-blað mánaðarins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS hefur endurvakið útgáfu á svonefndum Rb-blöðum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaða hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tilefni útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS eldri blöð í lok hvers mánaðar sem tengjast málefnum líðandi stundar.

Rb-blað mánaðarins fjallar í þetta skiptið um rakaþéttingu á gluggum til að koma í veg fyrir móðu, hélu, hrím og ís.

  • Rb-blað mánaðarins var gefið út í apríl 2008 og fjallar um móðu og ís á gluggum vegna rakaþéttingar. Einnig er bent á ástæður fyrir rakaþéttingu og tilgreindar leiðir til úrbóta. Blaðið má nálgast með því að smella á þennan hlekk.
  • Önnur útgefin Rb-blöð má nálgast með því að smella á þennan hlekk.

Raka­þétt­ing á glugg­um – móða, héla, hrím og ís

Í kuldaköstum getur rakaþétting á gluggum orðið að vandamáli. Slíkar rakaþéttingar geta valdið tjóni á tréverki í kringum glugga og skilið eftir ljót verksummerki.

Mikilvægt er að bregðast við móðu- og rakaþéttingu með fyrirbyggjandi aðgerðum. Skemmdir á gluggum geta stuðlað að stuttum líftíma byggingarvara og fúa og myglu svo dæmi séu tekin.

Meðal fyrirbyggjandi ábendinga eru að:

  • Auka hitastig varmagjafa undir gluggum þegar útihitastig lækkar.
  • Nota ekki rakaúðara.
  • Þurrka þvott í tauþurrkara sem blæs röku lofti út.
  • Staðsetja gluggatjöld það langt frá vegg að hlýtt loft geti farið á milli glers og gluggatjalda.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS