19. apríl 2023

Rafræn þinglýsing afsals vegna fasteignakaupa komin í gagnið

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Rafrænar þinglýsingar vegna fasteignakaupa eru loksins að verða að veruleika. Í seinustu viku var fyrsta afsalinu þinglýst með rafrænum hætti, en þessi breyting mun koma til með að vera bylting í pappírsvinnslu við fasteignakaup. Þetta er stór áfangi í verkefni sem unnið hefur verið að í samstarfi Stafræns Íslands við ráðuneyti og stofnanir um rafrænar þinglýsingar. Lagt hefur verið mat á hversu mikill ávinningurinn er af rafrænum þinglýsingum og ætla má að hann verði á bilinu 1,2-1,7 milljarðar króna á ári þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda.

Nú hafa fyrstu fasteignasölurnar, Ás og Procura, náð þeim áfanga að geta gengið frá þinglýsingu afsals með rafrænum hætti. Næstu stóru áfangar verkefnisins verða síðan að bjóða upp á rafræna þinglýsingu á öllum skjölum sem tengjast fasteignakaupum einstaklinga í þéttbýli. Til að það sé hægt þarf að bæta við möguleikanum á að þinglýsa kaupsamningum og veðleyfum með rafrænum hætti og stendur til að ljúka þeirri vinnu á seinni hluta þessa árs.

Verkefni um rafrænar þinglýsingar hefur verið í þróun frá árinu 2019 og er samstarfsverkefni Stafræns Íslands, sýslumanna, dómsmálaráðuneytisins, Þjóðskrár Íslands og Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar. Rafrænar þinglýsingar eru lykilþáttur í að Ísland verði fremst í flokki í stafrænni stjórnsýslu.

Nánari upplýsingar um rafrænar þinglýsingar á Ísland.is

Rafrænar þinglýsingar

Umsókn fyrir vefþjónustuaðgang að rafrænum þinglýsingum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS