16. nóvember 2023

Rafmagnsöryggi á hamfarasvæðum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í ljósi aðstæðna í Grindavík og nágrenni beinir HMS því til fólks að fara varlega í umgengni við rafmagn í húsnæði og öðrum mannvirkjum á svæðinu, sérstaklega ef skemmdir eru sýnilegar.

  • Hætta er á því að raflagnir og rafmagnstæki hafi skemmst í jarðhræringum og sé því ekki lengur hæf til notkunar.
  • Einnig er hætta á að varnarráðstafanir og varnarbúnaður (öryggi, bilunarstraumsrofar o.þ.h.) í húsum geti hafa skemmst sem eykur áhættu við notkun rafbúnaðar.
  • Þegar aðstæður leyfa er eigendum og umráðamönnum ráðlagt að láta löggiltan rafverktaka yfirfara raflagnir og varnarbúnað áður en húsnæðið er tekið aftur í venjulega notkun.

Samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum hafa orðið skemmdir á dreifikerfi þeirra og rafmagn farið af víða. Sjá tilkynningu frá HS Veitum.

HMS biður íbúa og aðra aðila á hamfarasvæðinu að fylgjast með tilkynningum frá rafveitum um ástand dreifikerfis þeirra.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS