27. ágúst 2026

Rætt um áskoranir og nýjar lausnir á haustfundi um fasteignamarkaðinn

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Kaupendur hafa aukið samningsvald á kólnandi fasteignamarkaði
  • Varaseðlabankastjóri telur lánþegaskilyrði hafa dregið úr óhóflegum skuldavexti en hefur áhyggjur af byggingariðnaðinum
  • Lágtekjufólki í Bandaríkjunum býðst að taka húsnæðislán með ríkisábyrgð

HMS hélt í dag, 27. ágúst, haustfund um fasteignamarkaðinn. Fundurinn var vel sóttur og þar fjölluðu gestir um stöðu markaðarins, lánþegaskilyrði, aðgengi að húsnæði og nýjar leiðir fyrir kaupendur til að komast inn á fasteignamarkað.

Kóln­andi mark­að­ur og lang­ur birgða­tími áhyggju­efni

Á fundinum var farið yfir kólnun fasteignamarkaðarins á síðustu misserum, þar sem samningsvald kaupenda hefur aukist. Eftirspurn hefur verið minni þar sem hægt hefur á fólksfjölgun og greiðslubyrði hefur orðið þyngri, en fyrstu kaupendur hafa samt náð að komast inn á markaðinn með stuðning frá foreldrum og nánum ættingjum.

Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, fjallaði um fasteignamarkaðinn og lánþegaskilyrði Seðlabankans. Hann ræddi meðal annars um hvernig skilyrðin hafa dregið úr óhóflegum skuldavexti heimila og hættu á skuldadrifinni húsnæðisbólu. Jafnframt bætti Tómas við að langur birgðatími og mikið framboð óseldra nýbygginga sé þó áhyggjuefni.

Þekk­ing fast­eigna­sala mik­il­væg á fast­eigna­mark­aði

Sonia Gilbukh, hagfræðingur og aðstoðarprófessor við Baruch College í New York, fjallaði um reynsluna af FHA-lánum í Bandaríkjunum. FHA-lán eru húsnæðislán með ríkisábyrgð sem auðvelda fólki með lágar tekjur og takmarkað eigið fé að kaupa húsnæði. Í erindi sínu dró Sonia fram lærdóm af úrræðinu og bar þau saman við hlutdeildarlán hér á landi.

Samkvæmt Soniu eru stuðningsúrræði sem bæta fjármögnun kaupenda ekki endilega næg til að lágtekjufólk standi jafnfætis öðrum kaupendum. Óvissa um fjármögnun getur til dæmis gert seljendur síður tilbúna til að samþykkja tilboð frá kaupendum sem nýta opinber úrræði. Sonia benti þá einnig á mikilvægt hlutverk fasteignasala og að góð þekking þeirra á úrræðunum geti skipt máli fyrir hvernig þau virka í framkvæmd.

Að lokum kynnti Halldór Kristján Sigurðsson, stofnandi Fjöldakaupa, nýja nálgun við fasteignakaup. Fjöldakaup byggir á því að safna saman kaupáhuga einstaklinga til að styrkja samningsstöðu þeirra og skapa möguleika á magnafslætti við kaup á íbúðum.

Upptöku af fundinum í heild sinni má finna hér að neðan:

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS