13. maí 2025
19. nóvember 2020
Ráðherra hrindir af stað landsátaki
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Við viljum eldklár heimili
Við viljum eldklár heimili
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hrinti í dag af stað nýju landsátaki í brunavörnum sem gengur undir heitinu Eldklár. Hann kynnti átakið á ráðstefnu slökkviliðsstjóra alls staðar af að landinu sem fram fór með fjarfundarbúnaði. Ásmundur Einar hleypti átakinu formlega af stokkunum með því að prófa batterí í reykskynjara. Ekkert öryggistæki skiptir jafn miklu máli við eldvarnir og reykskynjarinn og mælt er með að fólk prófi virkni þeirra helst mánaðarlega.
Átakinu er ekki aðeins ætlað að vekja landsmenn til umhugsunar um eldhættur og eldvarnir, heldur felur það einnig í sér nýja þjónustu við almenning, þar sem fólki býðst að skrá sig í eldvarnavakt hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og fá reglulegt aðhald og aðstoð við að sinna brunavörnum heimilisins.
Hluti Eldklár átaksins felst í því að heimili sem skrá sig munu þrisvar sinnum á ári fá senda gátlista varðandi helstu áhættuþætti og varnir við brunatjóni. Meðal þess sem Eldklár gátlistinn mun taka til er að tæki á borð við reykskynjara, eldvarnateppi og slökkvitæki séu til staðar og fái reglulegt viðhald en aðeins á um helmingi heimila í landinu má finna allt þrennt. Samkvæmt gögnum HMS eru um 97% heimila með að minnsta kosti einn reykskynjara, 72% með lítið slökkvitæki og 60% með eldvarnarteppi. Það er þó ekki nóg að þessi þrjú öryggistæki séu einfaldlega til staðar – hluti af gátlistanum felst í að tryggja að þau séu í lagi og á réttum stað. Því miður er fjöldi reykskynjara annað hvort ekki rétt staðsettur eða með tómum batteríum, og eldvarnateppi fjarri eldhúsinu. Mælst er til þess að virkni reykskynjara sé prófuð reglulega og skipt um rafhlöður í þeim einu sinni á ári og munu Eldklár heimili fá senda áminningu þess efnis.
Þá verður nýjum fræðslumyndböndum um eldvarnir dreift í gegnum samfélagsmiðla og aðra miðla í aðdraganda þeirra árstíma þar sem brunatíðni er hæst, t.d. fyrir jólahátíðina.
Einnig verður óskað eftir að fólk sem skráir sig í Eldklár svari spurningum um ástand brunavarna hjá sér og þannig fáist skýrari mynd af stöðu heimilanna að þessu leyti en stjórnvöld hafa ekki möguleika á að sinna eftirliti með lögbundnum brunavörnum heimila. Forvarnir eru eina færa leiðin.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Það er afar brýnt að þessi þrjú mikilvægu varúðar- og björgunartæki: Reykskynjari, eldvarnateppi og slökkvitæki, finnist á sérhverju heimili. Við eigum ekki að þurfa að horfa upp á hvern alvarlega brunann á fætur öðrum til að gera eitthvað í okkar málum. Það erum við sjálf sem getum gert gæfumuninn með því að gæta þess að heimilið sé ekki vanbúið gegn eldhættu. Við viljum eldklára Íslendinga og því vil ég hvetja sem flesta til að skrá sig til leiks í átakinu í gegnum heimasíðu HMS.“
Hérmá sjá myndband af ræðu Ásmundar við upphaf ráðstefnu slökkviliðsstjóra núna í hádeginu þar sem hann prófar meðal annars batterí í reykskynjara
Hér má sjá fyrsta fræðslumyndband átaksins.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS