8. maí 2026

Prófanir brunahólfandi hurða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

• Burður mun styðja íslenska hurðaframleiðendur við að senda hurðir í brunaprófanir erlendis

• Brunaprófanir hjá faggiltum prófunarstofum eru lykilforsenda fyrir öryggi og áreiðanleika byggingarvara

• Burður sér m.a. um flutning hurða til Danmerkur og tryggja aðgengi að prófunum hjá DBI

Eins og fram kom í frétt HMS í mars sl. mun Burður, nýr samstarfsvettvangur um rannsóknir og prófanir í mannvirkjagerð, styðja við íslenska hurðaframleiðendur við að senda hurðir í brunaprófanir til tilkynnts aðila erlendis, þar sem slíkur aðili er ekki starfandi hér á landi.

Mikilvægt er að byggingarvörur sæti prófunum hjá faggiltum prófunarstofum. Slíkar prófanir eru forsenda þess að hægt sé að treysta vörunum, bæði hvað varðar öryggi og að þær hafi raunverulega þá eiginleika sem framleiðandi þeirra gefur upp.

Burður hefur nú þegar hafið samtal við DBI (Danish Institute of Fire and Security) og mun stuðningur við íslenska framleiðendur m.a. felast í því að Burður:

  • hafi umsjón með flutningi á hurðum frá hópi íslenskra framleiðenda frá Íslandi til Danmerkur,
  • tryggi aðgengi að brunaprófunum hjá DBI,
  • tengi saman íslenska framleiðendur við ráðgjafa DBI eftir þörfum.

Athygli er vakin á því að framleiðendur bera sjálfir kostnað af prófunum á sínum vörum.

Framleiðendur brunahólfandi hurða sem vilja nýta sér stuðning Burðar við að koma hurðum í brunaprófanir erlendis eru hvattir til að senda póst á burdur@hms.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS