5. júní 2026
5. júní 2026
Prófanir brunahólfandi hurða – beiðni um stuðning þarf að berast fyrir 30 júní
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íslenskir framleiðendur brunahólfandi hurða sem vilja nýta sér stuðning Burðar við flutning hurða til brunaprófana hjá DBI í Danmörku þurfa að senda beiðni á burdur@hms.is fyrir 30. júní 2026
- Brunaprófanir eru lykilforsenda öryggis og áreiðanleika byggingarvara
- Burður styður framleiðendur með flutningi hurða til Danmerkur og aðgengi að brunaprófunum hjá DBI. Framleiðendur bera sjálfir kostnað af prófunum
Íslenskir framleiðendur brunahólfandi hurða þurfa að senda beiðni fyrir 30 júní n.k. hyggist þeir nýta sér stuðning Burðar við flutning á hurðum til DBI vegna brunaprófana. Það gera þeir með því að senda póst á burdur@hms.is.
HMS áréttar mikilvægi þess að byggingarvörur sæti prófunum hjá faggiltum prófunarstofum. Slíkar prófanir eru forsenda þess að hægt sé að treysta vörunum, bæði hvað varðar öryggi og að þær hafi raunverulega þá eiginleika sem framleiðandi þeirra gefur upp.
Burður er í samtali við DBI (Danish Institute of Fire and Security: DBI - Danish Institute of Fire and Security Technology) og mun stuðningur við íslenska framleiðendur m.a. felast í því að Burður:
- Hafi umsjón með flutningi á hurðum frá hópi íslenskra framleiðenda frá Íslandi til Danmerkur
- Tryggi aðgengi að brunaprófunum hjá DBI
- Tengi saman íslenska framleiðendur við ráðgjafa DBI eftir þörfum
Athygli er vakin á því að framleiðendur bera sjálfir kostnað af prófunum á sínum vörum.
Rétt er að nefna að HMS sinnir leiðbeinandi hlutverki en stofnunin mun ekki veita ráðgjöf varðandi prófanir og er mönnum bent á að leita beint til DBI eða annarra ráðgjafa.
Einnig er bent á Brunatæknifélag Íslands (BTÍ: BTI – Brunatæknifélag Íslands), sem þekkir til framangreindan stuðning og fyrirkomulag.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




