26. október 2020

Orkumerkingar eldunartækja

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í september s.l. framkvæmdi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skoðun á ástandi orkumerkinga nokkurra gerða af eldunartækjum, þ.e. bakarofna, eldavéla og gufugleypa.

Í september s.l. framkvæmdi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skoðun á ástandi orkumerkinga nokkurra gerða af eldunartækjum, þ.e. bakarofna, eldavéla og gufugleypa.

Í skoðuninni var ástand orkumerkinga 320 eldunartækja skoðað. Í niðurstöðum skoðunarinnar kemur fram að orkumerkingar í útstillingu á þessum tilteknu tegundum eldunartækja séu almennt í góðu ástandi, þó þeim hafi að hluta til verið ábótavant. Fram kom að 68% tækjanna reyndust hafa réttar og rétt staðsettar orkumerkingar, í 11% tilfella þóttu merkingarnar ekki fullnægjandi og 21% tilfella vantaði nauðsynlegar orkumerkingar.

Til samanburðar var gerð sambærileg skoðun árið 2018 á orkumerkingum eldunartækja, í flestum tilfellum hjá sömu söluaðilum. Í þeirri skoðun kom í ljós að 55% tækjanna höfðu réttar og rétt staðsettar orkumerkingar, í 4% tifella þóttu þær ekki fullnægjandi og í 41% tilfella vantaði nauðsynlegar orkumerkingar.

Hægt er að nálgast markaðskönnunina hér á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS