24. október 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í þriðju úthlutun fyrir árið 2024. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili.

Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember næstkomandi

Upplýsingar um stofnframlög

Stofn­fram­lög hafa ver­ið veitt til upp­bygg­ing­ar á nærri 3.777 íbúð­um

Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað stofnframlögum upp á rúmlega 28 milljarða til uppbyggingar á 3.777 leiguíbúðum víðs vegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingunni nemur um 141 milljörðum króna.

Fjölgun íbúða með stofnframlögum eftir landshlutum

Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.

Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.

Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar eða keyptar með stofnframlögum, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni t.a.m. stærðarmörk m.t.t. fjölda svefnherbergja. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi tekju-og eignaminni heimila.

Fyrirspurnir beinast á stofnframlag@hms.is

Nánar um stofnframlög

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS