11. október 2024

Opnað fyrir umsóknir um styrk úr Fræðslusjóði brunamála fyrir árið 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Fræðslusjóði brunamála fyrir árið 2024. Hægt er að nálgast umsóknarformið með því að smella hér, en umsóknirnar skal senda til HMS á netfangið brunavarnasvid@hms.is fyrir 31. október næstkomandi.

Styð­ur við rann­sókn­ir og þró­un á sviði bruna­mála

Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu þeirra sem starfa á sviði brunavarna og slökkvistarfa og sérstakra áhættuþátta í umhverfi þeirra sem sækja um styrki og auka hæfni þeirra til miðlunar þekkingar. Sjóðurinn greiðir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna, til námskeiðshalds og frekari uppbyggingar fagþekkingar á sviði brunavarna og slökkvistarfa sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1600/2022.

Fræðslusjóður brunamála hefur til umráða 14.000.000 kr. og mun 60-90% verða ráðstafað í verkefni sem hafa beina tengingu við starfsemi slökkviliða. Aðrir aðilar sem vinna að brunamálum eiga kost á 10-40% af ráðstöfunarfé sjóðsins. Sjóðurinn veitir ekki styrki til einkafyrirtækja.

Við úthlutun styrkja skal stuðst við umsagnir frá úthlutunarnefnd í samræmi við verklagsreglu HMS.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS