14. febrúar 2024

Opnað fyrir umsóknir um bráðabirgðarleyfi merkjalýsenda

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS vekur athygli á að búið er að opna fyrir umsóknir um bráðabirgðaleyfi merkjalýsenda sbr. reglugerð um merki fasteigna. Sækja þarf um bráðabirgðaleyfi fyrir 15. mars næstkomandi, en einungis leyfishafar geta tekið að sér gerð merkjalýsinga.

Hægt er að sækja um leyfið með því að smella hér

Merkja­lýs­ing­ar ein­ung­is í hönd­um leyf­is­hafa

Með lagabreytingum sem tóku gildi í ársbyrjun er eigendum skylt að láta gera merkjalýsingu um fasteignir sínar, liggi ekki fyrir þinglýst og glögg merki eða skýr afmörkun á þeim. Fasteignaeigendum ber einnig að viðhalda merkjum fasteigna sinna og gera nýja merkjalýsingu í hvert sinn sem ný fasteign er stofnuð eða þegar breytingar verða á merkjum fasteignarinnar.

Samkvæmt lögunum mega þeir einir gera merkjalýsingar sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra. Skilyrði fyrir slíku leyfi eru lögræði og búsforræði, auk þess sem viðkomandi ætti að hafa setið námskeið og staðist próf sem sýnir fram á að hann hafi staðgóða þekkingu á viðfangsefnum merkjalýsinga.

Bráða­birgða­leyfi til júní 2025

Hins vegar hafa slík námskeið, og þar af leiðandi almenn leyfisveiting, ekki hafist. Af þeim sökum geta aðeins þeir  sem starfað hafa hjá sveitarfélagi eða öðrum opinberum aðilum við stofnun og skráningu fasteigna sótt um bráðabirgðaleyfi sem merkjalýsendur hjá HMS. Hið sama á við um þá sem hafa útbúið landamerkjalýsingar og önnur skjöl til afmörkunar fasteigna en starfa ekki hjá hinu opinbera.

Sækja þarf um bráðabirgðaleyfi fyrir 15. mars 2024 og gildir leyfið í síðasta lagi til 1. júní 2025. Bráðabirgðaleyfishafar geta endurnýjað leyfin sín með því að sækja námskeið í viðfangsefnum merkjalýsinga og staðist próf að námskeiðinu loknu.

HMS hvetur alla sem áhuga hafa á að verða merkjalýsendur og telja sig uppfylla ofangreind skilyrði að sækja um bráðabirgðaleyfi.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS