4. maí 2022

Opnað fyrir nýjan áfanga Brunagáttarinnar á alþjóðlegum degi slökkviliðsmanna

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í dag 4. maí er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna. Í tilefni af þeim degi er opnað fyrir þriðja áfanga Brunagáttarinnar sem er miðlæg gátt fyrir rauntímaupplýsingar um stöðu slökkviliða á Íslandi.

Í dag 4. maí er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna. Í tilefni af þeim degi er opnað fyrir þriðja áfanga Brunagáttarinnar sem er miðlæg gátt fyrir rauntímaupplýsingar um stöðu slökkviliða á Íslandi.

Brunagáttin markar tímamót í stafrænni lausn fyrir slökkviliðin og mun nýtast sem mikilvægt stjórntæki til að ná fram yfirsýn yfir stöðu slökkviliða, svo sem um búnað og rekstur þeirra, mannskap og menntun, ásamt eldvarnareftirliti. Þá er gáttinni ætlað að auka stuðning við slökkviliðin og efla brunavarnir í landinu.

Markmið Brunagáttarinnar:

  • Rafræn lausn fyrir skilaskyld gögn slökkviliða
  • Samræmdar og samanburðarhæfar upplýsingar
  • Upplýsingarnar munu nýtast við gerð stafrænna brunavarnaáætlana
  • Yfirsýn yfir stöðu slökkviliða á landsvísu

Þriðji áfangi Brunagáttarinnar lýtur að æfingartíma og menntunarmálum slökkviliðsmanna. Framvegis munu slökkvilið geta skilað inn upplýsingum um starfsréttindi reykkafara beint í gegnum gáttina og haldið utan um þær upplýsingar í rauntíma. Þá verða upplýsingar um menntun slökkviliðsmanna aðgengilegar rafrænt, bæði fyrir slökkviliðsstjóra sem getur nú séð stöðuna á sínum mannskap og fyrir slökkviliðsmenn sem geta sótt upplýsingar um sína menntun.

Hér geta slökkviliðin í landinu skoðað Brunagáttina

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS