11. nóvember 2024
31. október 2024
Opinn fundur um stöðu íbúðauppbyggingar á Norðausturlandi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur.
Í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Norðausturlandi. Fundurinn verður haldin á Hótel KEA á Akureyri fimmtudaginn 7. nóvember og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðu HMS.
Dagskrá:
Þróun íbúafjölda á Norðurlandi eystra – þróun borgarsvæðis
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra
Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar á húsnæðissviði HMS
Byggjum í takt við þarfir
Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.
Fundarstjóri: Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Staða íbúðauppbyggingar á norðausturlandi
Staða íbúðauppbyggingar á norðausturlandi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS