14. nóvember 2024

Opinn fundur um stöðu íbúðauppbyggingar á Norðausturlandi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur – Norðausturland

HMS, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur.

Í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Norðausturlandi. Fundurinn verður haldin á Hótel KEA á Akureyri fimmtudaginn 21. nóvember og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð.

Fundinum verður einnig streymt á facebook síðu HMS.

Dagskrá:

Þróun íbúafjölda á Norðurlandi eystra – þróun borgarsvæðis
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra

Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur
- Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar á húsnæðissviði HMS

Byggjum í takt við þarfir
- Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.

Fundarstjóri: Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur

Staða íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS