8. maí 2025
2. júní 2021
Opinn fundur í beinni: Orkuskipti á framkvæmdastöðum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Grænni byggð, Landsvirkjun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Græna orkan bjóða til spennandi málstofu þar sem rætt verður um orkuskipti á framkvæmdastað.
Fundarstjóri verður Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, verkefnisstjóri orkuskipta hjá Orkustofnun
Aðalfyrirlesari verður Pablo Gonzales frá Skanska, sem mun segja frá áhugaverðri reynslu hins alþjóðlega byggingafyrirtækis af kolefnislausum framkvæmdastöðum.
Einnig taka til máls:
- Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Grænni byggð: Af hverju orkuskipti á framkvæmdastað?
- Björn Halldórsson og Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, Landsvirkjun: Kolefnishlutlaus 2025: Lágmörkum kolefnisspor framkvæmda.
- Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks: Eru ekki allir með?
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS: Byggjum grænni framtíð: Skref sem stuðla að orkuskiptum.
- Anna Margrét Kornelíusdóttir, Græna orkan: Orkuskipti vinnuvéla - Vinnandi vegur.
- Ragnar K. Ásmundsson, Orkusjóður: Stuðningur Orkusjóðs við kaup á vinnuvélum sem nota vistvæna orku.
Fundinum verður streymt á netinu 3. júní 2021, kl. 9:00-10:30.
Öll velkomin. Skráning á viðburðinn fer fram hér.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS