5. febrúar 2026

Opið fyrir umsóknir um stofnframlög 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í fyrstu úthlutun ársins 2026. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili. 

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars næstkomandi 

Umsókn um stofnframlag

Stofnframlög hafa verið veitt til uppbyggingar á um 4.000 íbúðum 

Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld, ríki og sveitarfélög úthlutað stofnframlögum upp á um 51 milljarð króna til uppbyggingar á um 4.000 leiguíbúðum víðsvegar um landið.  

Fjölgun íbúða með stofnframlögum eftir landshlutum 

Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í. 

Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. 

Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar eða keyptar með stofnframlögum, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni t.a.m. stærðarmörk m.t.t. fjölda svefnherbergja. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi tekju-og eignaminni heimila. 

Fyrirspurnir beinast á stofnframlag@hms.is 

Nánar um stofnframlög

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS