8. maí 2025
9. nóvember 2021
Óheimilt að nota eldri orkumerkingar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Frá og með 1. desember 2021 mega vörur í eftirfarandi vöruflokkum ekki vera í sölu, hvorki í verslunum né á vefnum nema bera nýju orkumerkimiðana:
Frá og með 1. desember 2021 mega vörur í eftirfarandi vöruflokkum ekki vera í sölu, hvorki í verslunum né á vefnum nema bera nýju orkumerkimiðana:
- Uppþvottavélar
- Kælitæki
- Þvottavélar
- Sambyggðar þvottavélar og þurrkarar
- Sjónvörp og rafrænir skjáir
Í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 frá 4. júlí 2017 um setningu ramma fyrir orkumerkingar og um niðurfellingu tilskipunar 2010/30/ESB sem innleidd er með lögum 72/1994, segir:
Söluaðila sem getur ekki fengið nýjan orkumerkimiða fyrir eintök sem þegar eru á lager vegna þess að birgðasali hefur hætt starfsemi, er heimilt að selja þessi tilteknu eintök með gamla orkumerkimiðanum eingöngu til 30. nóvember 2021. Eftir það mega þessi eintök ekki vera í verslunum og vefverslunum og ekki vera til sölu.
Ef engin eintök sem tilheyra sömu eða samsvarandi vörutegund eru sett á markað eftir 1. nóvember 2020 og ef gamla (óbreytta) orkumerkingin og sú nýja krefjast mismunandi prófana, er birgðasali undanþeginn því að afhenda nýja orkumerkimiðann fyrir eintök sem sett voru á markað fyrir 1. nóvember 2020. Í þeim tilfellum er söluaðila heimilt að selja þessi eintök með gamla merkimiðanum eingöngu til 30. nóvember 2021. Eftir það mega þessi eintök ekki vera í verslunum og vefverslunum og ekki vera til sölu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS