20. júní 2025

Nýtt Rb-leiðbeiningablað er komið út

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nýtt Rb-leiðbeiningablað, Þéttingar – Efni til þéttingar með gluggum og hurðum í útvegg, fjallar á skýran og hnitmiðaðan hátt um algengustu byggingarvörur til þéttinga með gluggum og hurðum í útveggi bygginga. Efni blaðsins er að hluta til uppfærsla á eldra Rb blaði,  RbYt.301 Þéttiefni fyrir fúgur – Flokkun og hugtök.

Vanda þarf til verks þegar um er að ræða þéttingar í útvegg því tilgangur og hlutverk þéttinga í fúgum er misjafn og tryggja þarf að réttar byggingarvörur séu notaðar miðað við hlutverk fúgunar.

„Virknikröfur til þéttinga mega eðli málsins skv. aldrei vera lakari en kröfur til þeirra byggingarhluta sem verið er að þétta með, t.d. hvað varðar slagregnsþol, loftþéttleika, varmatap eða brunaeiginleika“  

 

Framundan er frekari útgáfa í tengslum við þéttingar í útvegg, þá verklag við kíttun og virkni tveggja þrepa þéttinga.

Rb-leiðbeiningablöð innihalda tæknilegar upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur viðhaldi, verklagi, hönnun og byggingu mannvirkja. Blöðin hafa í gegnum tíðina verið höfð til halds og trausts fyrir fagaðila í byggingariðnaði og hinn almenna húseigenda.

Hér er hægt að nálgast ný og eldri Rb-blöð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS