1. júlí 2025
7. mars 2022
Nýjar orkumerkingar sjónvarpa og rafeindaskjáa
Orkumerkimiðarnir hafa því verið endurbættir til samræmis við þarfir notenda. Nýju merkimiðarnir urðu sýnilegir í verslunum og vefverslunum í mars á síðasta ári.
Orkumerkimiðarnir hafa því verið endurbættir til samræmis við þarfir notenda. Nýju merkimiðarnir urðu sýnilegir í verslunum og vefverslunum í mars á síðasta ári.
Eftirfarandi vöruflokkar fengu nýja orkumerkimiða:
- Þvottavélar
- Sambyggðar þvottavélar og þurrkarar
- Uppþvottavélar
- Sjónvörp og rafeindaskjáir
- Kælitæki
- Kælitæki notuð við beina sölu
- Ljósgjafar (fengu nýjar orkumerkingar 1. september 2021)
Í janúar og febrúar síðastliðinn lét Húsnæðis- og mannvirkjastofnun BSI á Íslandi framkvæma skoðun á ástandi nýrra orkumerkinga rafeindaskjáa. Með því er átt sjónvörp, tölvuskjái og stafræna upplýsingaskjái. í skoðuninni voru 509 skjáir skoðaðir og í niðurstöðunum kemur fram að orkumerkingar í útstillingu á þessum tilteknu tegundum hafi almennt verið í góðu ástandi, þó þeim hafi að hluta til verið ábótavant. Fram kom að ekki voru gerðar athugasemdir við 80% skjáanna, 10% skjáanna var ekki orkumerkimiða og 9% báru gömlu orkumerkimiðana.
Hver er helsti munurinn á gamla og nýja merkimiðanum?
- Nýi merkimiðinn notar samræmda orkunýtniflokka, A til G, fyrir allar vörur. Orkunýtniflokkarnir A+++, A++ og A+ munu hverfa.
- Merkimiðinn er tengdur við EPREL-gagnagrunninn með QR-kóða sem eykur gagnsæi og auðveldar markaðseftirlit.
- Orkunotkun varanna er sýnd á meira áberandi og einsleitari hátt í miðhluta merkimiðans.
- Í neðri hluta merkimiðans eru ýmis myndtákn sem skýra tiltekna eiginleika vörunnar. Nokkur þeirra eru eins og á gamla merkimiðanum, sum hafa verið endurgerð og sum eru ný.
Nýi orkumerkimiðinn fyrir sjónvörp og rafeindaskjái: