7. maí 2025
3. mars 2021
Nýjar orkumerkingar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þann 1. mars s.l. tóku í gildi nýjar orkumerkingar í Evrópu.
Þann 1. mars s.l. tóku í gildi nýjar orkumerkingar í Evrópu.
Vegna tækniþróunar og vegna þess að munurinn á milli A+, A++ og A+++ er ekki augljós neytendum auk þess sem flestar vörur á markaði eru í þremur efstu flokkunum, verður einfaldari orkumerkimiði með kvarðanum A – G tekinn upp að nýju. Vara í orkunýtniflokki A+++ mun til dæmis að óbreyttu verða í orkunýtniflokki B eftir breytinguna. Engar vörur verða í orkuflokki A í byrjun, til að stuðla að tæknilegri þróun til framtíðar.
Hvaða mikilvægu nýju atriði koma fram á nýju orkumerkimiðunum?
- Nýju merkimiðarnir verða með samræmdum orkunýtniflokkum, A til G, fyrir allar vörur. Orkunýtniflokkarnir A+++/A+ munu hverfa.
- Merkimiðarnir verða tengdir við gagnagrunn með QR-kóða. Gagnagrunnurinn veitir neytendum, söluaðilum og markaðseftirlitsstjórnvöldum frekari upplýsingar um allar orkumerktar vörur.
Hvaða orkumerkimiðar er verið að endurnýja?
Eftirfarandi vöruflokkar fá nýja merkimiða:
- Þvottavélar
- Þvottavélar með þurrkurum
- Uppþvottavélar
- Sjónvörp og rafeindaskjáir
- Kælitæki
- Ljósgjafar
Ljósgjafar munu fá nýjar orkumerkingar 1. september 2021.
Fleiri vöruflokkar munu frá nýja orkumerkimiða á komandi árum, svo sem þurrkarar, rýmishitarar, loftræstisamstæður, kælitæki sem notuð eru í atvinnuskyni, eldunartæki, vatnshitarar og katlar.
Hver er helsti munurinn á gamla og nýja orkumerkimiðanum?
- Nýi merkimiðinn notar samræmdan A – G kvarða, fyrir allar vörur. Orkunýtniflokkarnir A+++, A++ og A+ munu hverfa
- Merkimiðinn verður tengdur við EPREL-gagnagrunninn með QR-kóða sem mun auka gagnsæi og auðvelda markaðseftirlit
- Orkunotkun varanna er sýnd á meira áberandi og einsleitari hátt í miðju hluta merkimiðans
- Í neðri hluta merkimiðans eru ýmis myndtákn sem skýra tiltekna eiginleika vörunnar. Nokkur þeirra eru eins og á gamla merkimiðanum, sum hafa verð endurgerð og sum eru ný.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS