20. júlí 2026

Nýjar hagnýtar leiðbeiningar frá HMS um rekstur auðra húsa

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Nýjar leiðbeiningar HMS fjalla um hvernig draga megi úr hættu á tjóni þegar húsnæði stendur tímabundið autt
  • Áhersla er lögð á undirbúning og lokun húsnæðis, reglubundið eftirlit á lokunartíma og örugga enduropnun
  • Leiðbeiningarnar taka mið af íslenskum aðstæðum og nýtast eigendum og rekstraraðilum íbúðar-, þjónustu- og atvinnuhúsnæðis

HMS hefur gefið út nýjar hagnýtar leiðbeiningar um rekstur húsa sem standa tímabundið auð. Leiðbeiningarnar má nálgast með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Rekstur húsa sem standa tímabundið auð

Leiðbeiningarnar eru ætlaðar eigendum og rekstraraðilum húsnæðis og veita hagnýt ráð um undirbúning, eftirlit og enduropnun. Markmiðið er að draga úr hættu á meðal annars vatns- og frosttjóni, raka og myglu, bruna, innbrotum og öðrum skemmdum meðan húsnæði er ekki í notkun.

Þrír lyk­ilá­fang­ar

Leiðbeiningarnar fjalla um þrjá megináfanga: undirbúning og lokun húsnæðis, rekstur og reglubundið eftirlit meðan húsnæðið stendur autt og enduropnun þess þegar notkun hefst á ný.

Sérstök áhersla er lögð á skýra ábyrgð, skipulagt eftirlit, skráningu og örugga meðferð tæknikerfa á lokunartíma.

Tek­ið mið af ís­lensk­um að­stæð­um

Leiðbeiningarnar nýtast eigendum og rekstraraðilum íbúðar-, þjónustu- og atvinnuhúsnæðis. Þær taka mið af íslenskum veðuraðstæðum, svo sem frosti, hlákum, slagregni og hvassviðri, sem geta aukið hættu á tjóni þegar húsnæði stendur autt og regluleg viðvera er lítil eða engin.

Markmiðið með leiðbeiningunum er að styðja eigendur og rekstraraðila við að varðveita húsnæði með öruggum hætti á lokunartíma, draga úr líkum á kostnaðarsömu tjóni og auðvelda örugga og farsæla enduropnun þegar húsnæðið er tekið aftur í notkun.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS