4. apríl 2022

Nýjar brunavarnaáætlanir undirritaðar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Brunavarnir Rangárvallarsýslu og Slökkvilið Snæfellsbæjar

Föstudaginn 1. apríl sl. voru tvær nýjar brunavarnaáætlanir fyrir starfssvæði Brunavarna Rangárvallarsýslu og Slökkviliðs Snæfellsbæjar samþykktar og undirritaðar af forstjóra HMS, slökkviliðsstjóra Brunavarna Rangárvallasýslu, slökkviliðsstjóra Snæfellsbæjar, formanni stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu og bæjarstjóra Snæfellsbæjar.

Á síðustu mánuðum hefur HMS unnið markvisst að því að styðja slökkviliðin í landinu við gerð brunavarnaáætlana og er gaman að segja frá því að nú er tæpur helmingur slökkviliða í landinu með gilda áætlun eða 15 af 32 slökkviliðum landsins.

Markmið brunavarnaáætlunar er  að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin samkvæmt lögum.. Brunavarnaáætlun leggur grunninn að gæðastjórnun og úttekt á starfsemi slökkviliða fyrir þá aðila sem bera ábyrgð á brunavörnum í hverju sveitarfélagi. Áætlunin auðveldar einnig íbúum sveitarfélagsins að fá upplýsingar um veitta þjónustu, skipulag slökkviliðs og markmið með rekstri þess í sveitarfélaginu.

HMS óskar Slökkviliði Snæfellsbæjar, Brunavörnum Rangárvallarsýslu og íbúum sveitafélaganna til hamingju með áfangann.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS