13. júní 2025
12. júní 2025
Nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu: aukið framboð, minni sala
- Á sama tíma og kaupsamningum fjölgaði seldust færri nýjar íbúðir¹ á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta fjórðungi þessa árs samanborið við í fyrra
- Fjöldi nýrra íbúða verðlagðar yfir 100 milljónir hefur aukist um 60% milli ára
- Einungis um 2% allra nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru verðlagðar á undir 60 milljónum króna, eða 28 talsins
Þrátt fyrir að virkni á fasteignamarkaði sé meiri en í fyrra seljast færri nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Nýjar íbúðir sem eru til sölu eru sömuleiðis töluvert dýrari en í fyrra, en nær engar þeirra eru auglýstar á undir 60 milljónum króna. Þetta kemur fram þegar upplýsingar úr fasteignaauglýsingum eru bornar saman á milli ára.
Á höfuðborgarsvæðinu eru umsvif á fasteignamarkaði áþekk því sem þau voru í fyrra en um 100 fleiri kaupsamningar voru gerðir á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við árið á undan, eða um 1.796 í ár en 1.694 í fyrra.
Á sama tíma og kaupsamningum fjölgaði seldust færri nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu samanborið við í fyrra. Framboð nýrra íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu hefur jafnframt aukist á milli ára en í upphafi maímánaðar voru um 1.130 nýjar íbúðir til sölu en þær voru um 750 á sama tíma í fyrra en í heildina voru um 2.700 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu í upphafi maímánaðar.
Fleiri dýrar og nýjar íbúðir til sölu
Sé rýnt í framboð íbúða eftir verðbilum hefur fjöldi nýrra íbúða sem verðlagðar eru á 100 milljónir króna eða meira aukist um 60% milli ára (úr 205 í 327 íbúðir). Líkt og sjá má á mynd hér að neðan eru flestar nýjar íbúðir til sölu verðlagðar á bilinu 80-100 milljónir króna en álíka margar íbúðir eru til sölu á 60-80 milljónir króna.
Einungis um 2% allra nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru hins vegar verðlagðar undir 60 milljónum króna, eða 28 talsins. Mestu munar í milli á samsetningu framboðs eldri og nýrra íbúða í þeim verðflokki en 14% eldri íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu eru verðlagðar undir 60 milljónum króna. Þannig eru eldri íbúðir til sölu á stærra verðbili en nýjar íbúðir, líkt og meðfylgjandi mynd sýnir.
Tæplega 1,1 milljóna fermetraverð nýrra og dýrra íbúða
Líkt og fram kom hér að framan eru einungis 2% nýrra íbúða verðlagðar undir 60 milljónum króna þessa daganna. Þar að auki er fermetraverðið á þeim rúmlega 27% hærra en meðal eldri íbúða í sama verðflokki. Þessi munur helgast af því að meðalstærð nýrra íbúða í þessum verðflokki er 8 fermetrum minni á sama tíma og meðalsöluverð þeirra er tæplega 6 milljón krónum hærra. Meðal íbúða sem verðlagðar eru á bilinu 60-80 milljónir króna annars vegar og 80-100 milljónir króna hins vegar er munur á fermetraverði aftur á móti minni eða á bilinu 4-8%.
Líkt og sjá myndinni hér að neðan eru nýjar íbúðir sem verðlagðar eru á 100 milljónir króna eða yfir bæði minni og dýrari en eldri íbúðir í sama verðflokki. Fermetraverð nýrra íbúða er 1.088 þúsund krónur samanborið við 955 þúsund krónur meðal eldri íbúða. Fjöldi nýrra íbúða til sölu á þessu verðbili er tvöfalt meiri nú en fyrir ári síðan. Með þéttingu byggðar hafa orðið til fjölbýliskjarnar á eftirsóttum stöðum. Dæmi um slíka staði eru Austurhöfn, Heklureitur, Hlíðarendi, Orkureitur og Gróttubyggð.
Því hefur stærra hlutfall af nýjum íbúðum til sölu verið íbúðir sem flokka má sem lúxusíbúðir út frá verðlagningu þeirra. Fleiri slíkar íbúðir eru væntanlegar meðal annars á Héðinsreit, Steindórsreit, Loftleiðarsvæðinu, Vesturbyggð, Skerjafirðinum og Borgarspítalareit á næstu misserum.
¹Íbúð telst vera ný ef byggingarár er innan við tveimur árum frá útgáfudegi kaupsamnings.
*Frétt þessi er byggð á grein sem birtist í 21. tölublaði Vísbendingar sem kom út 6. júní síðastliðinn.