21. janúar 2025
21. janúar 2025
Ný tímasetning: Öruggt húsnæði með stuðningi stjórnvalda - opinn fundur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður fundinum frestað til mánudagsins 27. janúar kl 13.
Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra ávarpar fund um öruggt húsnæði byggt með stuðningi stjórnvalda.
HMS boðar til opins fundar mánudaginn 27. janúar kl. 13:00.
Á fundinum verður fjallað um stuðning stjórnvalda við uppbyggingu á húsnæði. Það er mikilvægt samfélagslegt og efnahagslegt verkefni að tryggja nægt aðgengi að öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði og auka þannig húsnæðisöryggi tekjulægri hópa.
Fundurinn verður haldinn í HMS í Borgartúni 21 og stendur í um eina klukkustund.
Boðið verður upp á léttar veitingar og verður fundinum einnig streymt á hms.is/streymi.
Vonumst til að sjá þig.
Dagskrá:
- Ávarp ráðherra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra - Íbúðir á viðráðanlegu verði - hvernig fjölgum við þeim?
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs HMS - Reynslusaga uppbyggingaraðila
Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags
Fundarstjóri: Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingur hjá HMS
Skráning á fundinn
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS