4. júlí 2025
7. desember 2021
Ný brunavarnaáætlun undirrituð – Grundarfjörður
Föstudaginn 3. desember sl. var ný brunavarnaáætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs Grundarfjarðar samþykkt og undirrituð af forstjóra HMS, slökkviliðsstjóra og bæjarstjóra Grundarfjarðar. Markmið brunavarnaáætlunar er eins og segir í 1. mgr. 13.gr. laga nr. brunavarnir nr. 75/2000 að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin með lögum þessum og reglugerðum samkvæmt þeim. Brunavarnaáætlun leggur grunninn að gæðastjórnun og úttekt á starfsemi slökkviliða fyrir þá aðila sem bera ábyrgð á brunavörnum í hverju sveitarfélagi. Áætlunin auðveldar einnig íbúum sveitarfélagsins að fá upplýsingar um veitta þjónustu, skipulag slökkviliðs og markmið með rekstri þess í sveitarfélaginu.

HMS óskar Slökkviliði Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbæ til hamingju með áfangann.
Sjá nánar hér: https://hms.is/media/11396/brunavarnaa-aetlun-slo-kkvilids-grundarfjardar-2021-2026.pdf