8. maí 2026
8. maí 2026
Ný brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Ný brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja hefur verið samþykkt og gildir næstu fimm árin
- Áætlunin byggir á áhættumati starfssvæðisins og styður við öryggi íbúa, eigna og innviða
- Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja fengu viðurkenningar fyrir árangur í slökkviliðs- og sjúkraflutninganámi
Aðalfundur Brunavarna Suðurnesja (BS) var haldinn fimmtudaginn 30. apríl í Reykjanesbæ. Að fundi loknum var ný brunavarnaáætlun BS undirrituð.
Nýja áætlunin tekur við af eldri áætlun sem var í gildi til lok árs 2025, sú nýja gildir í fimm ár. Hún er samþykkt af HMS, stjórn BS og sveitarfélögum á starfssvæði slökkviliðsins. Markmið brunavarnaáætlunar er samkvæmt lögum um brunavarnir að tryggja að slökkvilið sé mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað til að ráða við þau verkefni sem því er falið. Áætlunin byggir á áhættumati starfssvæðisins, sem ræður stærð og skipulagi slökkviliðsins og er grundvöllur að forgangsröðun aðgerða, fjármagns og eykur öryggi íbúa svæðisins.
Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri BS segir að brunavarnaáætlun sé eitt mikilvægasta stjórntæki slökkviliðs og sveitarfélaga þegar kemur að öryggi íbúa, eigna og umhverfis. Með gerð hennar fáist heildstæð mynd af raunstöðu slökkviliðsins, bæði hvað varðar búnað, mannafla og viðbragðsgetu gagnvart þeim áhættum sem eru til staðar í viðkomandi sveitarfélagi: ,,Áætlunin er ekki einungis stöðumat, heldur einnig skýr framtíðarsýn. Með markvissri framkvæmdaráætlun er sett fram stefna um hvert skuli stefna og hvaða þróun sé æskileg næstu 5 árin, til að tryggja að slökkviliðið sé í stakk búið til að mæta breyttum aðstæðum og auknum kröfum samfélagsins. Undirrituð brunavarnaáætlun hefur einnig mikið vægi fyrir sveitarfélögin sjálf. Hún veitir þeim skýra innsýn í getu slökkviliðsins og er mikilvægt verkfæri í skipulagsmálum, uppbyggingu innviða og stefnumótun til framtíðar. Með henni er hægt að samræma væntingar, forgangsraða fjárfestingum og styrkja heildaröryggi samfélagsins.Eldavarnareftirlit er jafnframt lykilþáttur í brunavörnum. Virkt og faglegt eftirlit dregur úr líkum á eldsvoðum, eykur meðvitund og ábyrgð rekstraraðila og tryggir að mannvirki uppfylli kröfur um brunavarnir. Geta slökkviliðsins til að sinna þessu eftirliti hefur því bein áhrif á forvarnir og öryggi íbúa. Í heild sinni er brunavarnaáætlun því bæði verkfæri til að meta stöðuna í dag og leiðarvísir að öruggara samfélagi til framtíðar“.
Viðurkenningar veittar fyrir nám slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
BS veitti jafnframt starfsmönnum sínum viðurkenningar sem höfðu nýverið lokið áföngum í slökkviliðs- og sjúkraflutninganámi. Eftirtaldir aðilar fengu viðurkenningu:
- Framhaldsnám í slökkviliðsfræðum: Ólöf Edda Eðvarðsdóttir, Sara Mjöll Sigurðardóttir. Helga Kristín Guðmundsdóttir og Jón Kristinn Pétursson
- Köfunarflokkur: Gunnlaugur Helgi Friðbjörnsson, Ari Gauti Arinbjörnsson og Sverrir Þór Freysson
- Bráðatæknanám: Jóhanna Jóhannesdóttir og Stefán Freyr Thordersen
- Framhaldsmenntun í sjúkraflutningum: Sara Mjöll Sigurðardóttir, Jón Kristinn Pétursson og Sverrir Þór Freysson
HMS óskar starfsmönnunum innilega til hamingju með viðurkenningarnar og Brunavörnum Suðurnesja og íbúum sveitarfélaganna til hamingju með nýja brunavarnaáætlun.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS






