21. júní 2023

Ný brunavarnaáætlun Austur-Skaftafellssýslu tekur gildi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Ný brunavarnaáætlun Brunavarna Austur-Skaftafellssýslu hefur verið undirrituð af slökkviliðsstjóra, sveitarstjóra og forstjóra HMS. Í heildina eru 34 slökkvilið starfandi í landinu sem starfa á vegum 64 sveitarfélaga, 18 af 34 slökkviliðum eru nú með gilda brunavarnaáætlun.

Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast við áhættur á sínu svæði.

Brunavarnaáætlunin er nú aðgengileg á vefsíðu viðkomandi sveitarfélags en einnig eru hún birt á vef HMS.

Brunavarnaáætlanir

Hér má skoða þær brunavarnaráætlanir sem eru í gildi.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS