28. nóvember 2023

Norrænt samstarf um vistvæna mannvirkjagerð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í september sl. komu norrænir ráðherrar húsnæðis- og mannvirkjamála saman á fundi í Reykjavík. Þar var tímamótayfirlýsingum sjálfbærni í mannvirkjamálum samþykkt einróma. Í yfirlýsingunni segir að berjast þurfi gegn loftslagsbreytingum með skýrum aðgerðum á sviði mannvirkjamála og markmiðið sé að Norðurlöndin verði leiðandi í vistvænni mannvirkjagerð í heiminum. Unnið hefur verið að mótun yfirlýsingarinnar frá árinu 2021 þegar Norræna ráðherranefndin hleypti af stokkunum samvinnuverkefninu Nordic Sustainable Construction.

Þau sem starfa við eða eru áhugasöm um vistvæna mannvirkjagerð eru hvött til að fylgjast með þróun mála á heimasíða verkefnisinseða á LinkedIn.

Með verkefninu er m.a. unnið að samræmingu á lífsferilsgreiningum og unnið með ýmsa þætti í þeim efnum. Í lok október var til að mynda vinnustofa um LCA gagnabanka, hér má nálgast upptöku af henni. Þá verður haldin vinnustofa á Teams þann 12. desember n.k. um samþættingu LCA og BIM. Frekari upplýsingar um hana og skráning fer fram hér.

Í samstarfsverkefninu Nordic Sustainable Construction ber Ísland ábyrgð á þeim vinnupakka sem fjallar um losunarfría verkstaði en Grænni byggð sér um framkvæmd verkefnisins. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

HMS hefur tekið virkan þátt í hinu norræna samstarfsverkefni frá upphafi og tengt það meðal annars við framkvæmd aðgerða sem eru unnar á vegum Byggjum grænni framtíð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS